KA bikarmeistari í 4. flokki yngri

Handbolti
KA bikarmeistari í 4. flokki yngri
Sigurgleđin var gríđarleg ađ leik loknum!

Strákarnir á yngra ári í 4. flokki léku í dag til úrslita í Coca-Cola bikarnum er ţeir mćttu FH í Laugardalshöllinni. Búist var viđ hörkuleik enda bćđi liđ í toppbaráttu í efstu deild í flokknum og má međ sanni segja ađ andrúmsloftiđ í Höllinni hafi veriđ afar skemmtilegt.

KA liđiđ hafđi haft töluvert fyrir ţví ađ komast í Höllina en strákarnir höfđu slegiđ út Fram og Hauka sem eru í efstu fjórum sćtum deildarinnar á útivelli auk ţess ađ slá ÍBV út í Vestmannaeyjum. Enda sást ţađ strax frá upphafsflautinu ađ ekkert stress var í liđinu og strákarnir tóku strax yfirhöndina.

Fyrstu ţrjú mörk leiksins voru KA liđsins og forskotiđ jókst er á leiđ fyrri hálfleikinn. Allt útlit var fyrir ađ strákarnir myndu fara međ gott forskot inn í síđari hálfleikinn en FH-ingar náđu góđum endaspretti og stađan var ţví 9-7 í hléinu.

Stefán Árnason og Heimir Örn Árnason ţjálfarar strákanna nýttu hálfleikinn vel í ađ koma strákunum aftur á beinu brautina og ţađ var aldrei spurning í ţeim síđari hvoru megin sigurinn myndi enda. Hvort sem var í vörn eđa sókn hafđi KA liđiđ mikla yfirburđi og á endanum vannst 24-14 sigur.

KA er ţví Coca-Cola bikarmeistari í 4. flokki yngra árs og eru strákarnir svo sannarlega verđugir meistarar enda fóru ţeir í gegnum öll sterkustu liđ landsins í leiđ sinni ađ titlinum.

Skarphéđinn Ívar Einarsson var valinn mađur leiksins en hann var einnig markahćstur međ 12 mörk. Marinó Ţorri Hauksson gerđi 4 mörk, Jens Bragi Bergţórsson 3, Logi Gautason 3, Dagur Árni Heimisson 1 og Bjarki Jóhannsson 1. Jóhannes Geir Gestsson átti stórleik í markinu og varđi 14 skot, ţar af eitt vítakast og Vignir Otri Elvarsson varđi tvö skot.

Bikarmeistarar KA í 4. flokki karla yngra ár:
Aftari röđ f.v.: Heimir Örn Árnason, ţjálfari, Dagur Árni Heimisson, Marinó Ţorri Hauksson, Bjarki Jóhannsson, Stefán Ţórarinn Sigurđsson, Jens Bragi Bergţórsson, Stefán Árnason, ţjálfari.
Fremri röđ f.v.: Hjalti Valsson, Magnús Dagur Jónatansson, Jóhannes Geir Gestsson, Skarphéđinn Ívar Einarsson, Vignir Otri, Elvarsson, Logi Gautason, Steinţór Snćr Jóhannsson.

Viđ óskum strákunum hjartanlega til hamingju međ titilinn og hlökkum svo sannarlega til ađ fylgjast áfram međ framgöngu ţeirra í vetur en ţeir eru á toppi deildarinnar fyrir lokasprettinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband