KA getur orðið bikarmeistari um helgina | Gunnar Pálmi í viðtali

Blak

Karlalið KA í blaki getur um helgina orðið bikarmeistari, í þriðja sinn á fjórum árum.

Úrslitahelgi Kjörísbikarkeppninnar fer fram um helgina í Digranesi í Kópavogi. KA tekur á móti neðrideildarliði Hrunamanna á laugardaginn og vinnist þá leikur spila þeir úrslitaleik á sunnudaginn gegn Stjörnunni eða HK.

Leikurinn á morgun gegn Hrunamönnum hefst kl. 17:00 og vinnist leikurinn er úrslitaleikurinn kl. 13:30 á sunnudeginum. 

KA er einnig með 3. flokk í úrslitahelgi í bikarkeppninni. Sýnt verður frá undanúrslitum á SportTV og hjá BLÍ en úrslitaleikir meistaraflokkanna verða í beinni á RÚV á sunnudag.

Gunnar Pálmi Hannesson, leikmaður KA, kíkti í spjall við heimasíðuna áður en liðið lagði  af stað suður í dag:

 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband