KA hefur leik á Kjarnafæðismótinu

Fótbolti

Meistaraflokkur KA hefur leik á Kjarnafæðismótinu í knattspyrnu í dag þegar liðið mætir Völsung frá Húsavík í Boganum klukkan 16:15. Það er hinsvegar ekki eini leikur dagsins því KA2 mætir Þór klukkan 14:15 og hvetjum við ykkur eindregið til að mæta og styðja okkar lið í upphafi undirbúningstímabilsins.

Nokkrar breytingar hafa verið á KA liðinu frá sumrinu og verður áhugavert að sjá hvernig liðið kemur til leiks enda eru þeir Óli Stefán Flóventsson og Sveinn Þór Steingrímsson að koma sínu leikskipulagi til skila hjá strákunum.

KA-TV verður með leik KA og Völsungs í beinni útsendingu en að sjálfsögðu hvetjum við ykkur sem getið til að drífa ykkur í Bogann, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband