KA ósigrađ í Grill66 deild karla

Handbolti
KA ósigrađ í Grill66 deild karla
Sigţór Gunnar Jónsson skorađi fyrstu tvö mörk KA

KA lék sinn ţriđja leik í Grill66 deild karla á föstudagskvöldiđ ţegar Ungmennaliđ Hauka kom í heimsókn. Heimamenn söknuđu tveggja öflugra leikmanna, reynsluboltinn Heimir Örn Árnason meiddist á fingri í fyrsta leiknum og fćreyska skyttan, Áki Egilsnes handarbrotnađi á ćfingu. Ţađ var hins vegar gleđilegt ađ markvörđurinn Jovan Kukobat var kominn međ leikheimild en hann missti af fyrstu tveim leikjunum.

Leikurinn fór fjörlega af stađ og mikiđ jafnrćđi međ liđunum en ţannig var jafnt á nánast öllum tölum fyrstu 24 mínúturnar.  Ţá sýndi KA liđiđ styrk sinn og breytti stöđunni úr 10-10 í 14-10 međ fjórum mörkum í röđ. Haukar áttu lokamark fyrri hálfleiks ţannig ađ munurinn var ţrjú mörk, 14-11 í hálfleik.

Jóhann Einarsson međ 3 mörk, Dađi Jónsson, Elfar Halldórsson, Sigţór Gunnar Jónsson og Sigţór Árni Heimisson allir međ tvö mörk.

Haukar mćttu ákveđnir til seinni hálfleiksins, skoruđu fyrstu tvö mörkin en KA menn náđu fljótt vopnum sínum á ný og átti Sigţór Árni Heimisson trúlega tilţrif leiksins ţegar hann skorađi 20. mark KA eftir ađ hafa náđ eigin frákasti. Hćgt er ađ skođa markiđ í spilaranum hér ađ neđan.

Um miđjan hálfleikinn var forskot KA orđiđ fimm mörk, 22-17. Sá munur hélst áfram, munurinn varđ mestur sex mörk 25-19 og 26-20 og sigurinn í höfn. Haukar náđu reyndar ađ klóra í bakkann í blálokin en ţriggja marka sigur, 28-25 stađreynd.

Mörk KA: Sigţór Árni Heimisson 5, Andri Snćr Stefánsson 4 (3 úr vítum), Jóhann Einarsson 4, Dađi Jónsson 3, Elfar Halldórsson 3, Ólafur Jóhann Magnússon 3, Sigţór Gunnar Jónsson 3, Jón Heiđar Sigurđsson 2 og Dagur Gautason 1 mark.
Jovan Kukobat varđi tíu skot.

Mörk Hauka: Orri Freyr Ţorkelsson 7, Jason Guđnason 6, Hallur Kristinn Ţorsteinsson 4, Hjörtur Ingi Halldórsson 4, Ţórarinn Leví Traustason 2, Jörgen Freyr Ólafsson og Karl Viđar Pétursson 1 mark hvor.

Hér má sjá gang leiksins:
Tímalína fyrri hálfleiks
Tímalína seinni hálfleiks

Leikurinn var í beinni útsendingu á KA TV og er hćgt ađ horfa á útsendinguna hér ađ neđan.

KA er ţví međ fullt hús eftir ţrjár fyrstu umferđirnar líkt og Akureyri og ţađ verđur ţví toppslagur í KA heimilinu á miđvikudaginn ţegar liđin mćtast í sannkölluđum nágrannaslag. Sá leikur hefst klukkan 19:00.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband