KA tekur á móti Völsung í kvöld

Blak
KA tekur á móti Völsung í kvöld
Stelpurnar eru klárar í slaginn!

Kvennaliđ KA hefur fariđ frábćrlega af stađ í Mizunodeildinni í blaki og er á toppi deildarinnar međ fullt hús stiga eftir fyrstu ţrjá leiki vetrarins. Í kvöld tekur liđiđ á móti Völsung í sannkölluđum nágrannaslag en leikurinn hefst klukkan 20:00 í KA-Heimilinu.

Liđ Völsungs hefur fariđ nokkuđ vel af stađ í deildinni en liđiđ hefur unniđ tvo af fjórum leikjum sínum. Liđiđ tapađi í oddahrinu gegn Aftureldingu í fyrsta leik en hefndi fyrir ţađ degi síđar og lagđi Mosfellinga ađ velli 1-3. Í nćsta leik tapađi liđiđ 3-0 gegn HK en vann svo góđan 3-0 sigur á Ţrótti um síđustu helgi.

Húsvíkingar eru ţví í 3. sćti deildarinnar međ 7 stig og ljóst ađ KA liđiđ ţarf ađ hafa fyrir hlutunum í kvöld til ađ halda áfram ţví skriđi sem liđiđ hefur veriđ á. Ţađ stefnir í hörkubaráttu í deildinni en Ţróttur Nes. hefur unniđ fyrstu fjóra leiki og HK unniđ báđa sína leiki til ţessa.

Viđ hvetjum ykkur ađ sjálfsögđu til ađ drífa ykkur í KA-Heimiliđ í kvöld og styđja okkar liđ til sigurs en ef ţiđ komist ómögulega ţá verđur leikurinn í beinni á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband