KA/Ţór vann frábćran sigur á Stjörnunni

Handbolti
KA/Ţór vann frábćran sigur á Stjörnunni
6 stig af 10 mögulegum! (mynd: Ţórir Tryggva)

KA/Ţór tók á móti Stjörnunni í KA-Heimilinu í kvöld í 5. umferđ Olís deildar kvenna. Stelpurnar höfđu unniđ báđa útileiki vetrarins en hinsvegar höfđu báđir heimaleikirnir tapast og sást langar leiđir ađ stelpurnar ćtluđu sér ađ breyta ţví í kvöld. Byrjunin var eftir ţví og strax eftir fimm mínútna leik var stađan orđin 4-0 og spilamennskan algjörlega til fyrirmyndar.

Varnarleikur liđsins var stórkostlegur og ţar fyrir aftan var Olgica Andrijasevic eins og klettur og héldu yfirburđir stelpnanna áfram ţví eftir kortér var stađan 7-1. Ótrúlegt ađ sjá jafn vel mannađ liđ Stjörnunnar ađeins gera eitt mark á ţessum tíma. En gestirnir náđu loks áttum og minnkuđu muninn í fjögur mörk.

Sá munur hélst í nokkurn tíma en ţá kom aftur frábćr kafli hjá okkar liđi sem breytti stöđunni úr 10-6 yfir í 13-7, hálfleikstölur voru svo 14-8 og stađan ansi hreint góđ.

Gestirnir áttu svo aldrei möguleika í síđari hálfleik ţví snemma í síđari hálfleik var munurinn orđinn átta mörk og síđar náđist níu marka forysta og eina spurningin í raun bara hversu stór sigur KA/Ţórs yrđi.

Er 20 mínútur lifđu leiks var stađan 21-12 og ţá kom ansi slćmur kafli ef kafla má kalla ţar sem stelpurnar skoruđu einungis tvö mörk ţađ sem eftir var og gestirnir löguđu stöđuna án ţess ţó ađ gera leikinn spennandi.

Lokatölur 23-19 og frábćr heimasigur stađreynd. KA/Ţór hefur ţar međ unniđ ţrjá leiki af fyrstu fimm og situr í 3. sćti deildarinnar međ 6 stig sem ćtti ađ koma einhverjum sérfrćđingum á óvart enda liđinu spáđ nćstneđsta sćtinu fyrir tímabiliđ.

Spilamennskan fyrstu 40 mínútur leiksins var algjörlega stórkostleg og ljóst ađ fá liđ deildarinnar eiga rođ í liđiđ ţegar ţađ leikur eins og ţađ gerđi á ţessum mínútum. Hinsvegar er smá áhyggjuefni hvađ liđiđ virđist eiga erfitt međ ađ spila heilan leik á fullum krafti.

Vissulega kom slćmi kaflinn í kvöld á tíma ţar sem spennan í leiknum var í raun horfin en ţetta er ţó klárlega eitthvađ sem Jónatan og Ţorvaldur ţurfa ađ fara yfir.

Mörk KA/Ţórs: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 9 mörk, Martha Hermannsdóttir 6, Katrín Vilhjálmsdóttir 3, Ásdís Guđmundsdóttir 2, Ţórunn Eva Sveinbjörnsdóttir 1, Ţóra Björk Stefánsdóttir 1 og Una Kara Jónsdóttir 1 mark.

Olgica Andrijasevic varđi 17 skot í markinu og Selma Sigurđardóttir Malmquist varđi vítakast sem var eina skotiđ sem hún fékk á sig í leiknum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband