Kara Guðrún Melstað látin

Almennt

Kara Guðrún Melstað er látin 61 árs að aldri. Kara var mikill stuðningsmaður KA og þó sérstaklega handknattleiksdeildarinnar á meðan hún og eiginmaður hennar, Alfreð Gíslason, bjuggu á Akureyri.

Kara var ötul í því að selja allskyns varning til styrktar handknattleiksdeildinni, t.d. boli fyrir leiki, KA náttföt sem seld voru í afgreiðslunni og fleira og fleira.Hugur hennar og áhugi fyrir KA var alltaf samur og dofnaði ekki þótt árin í Þýskaland væri orðin mörg.

Gengin er yndisleg kona sem öll okkar í KA hugsa mjög hlýlega til. Við vottum Alfreð, eiginmanni hennar, börnum, barnabörnum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband