Leikir meistaraflokkanna á næstunni

Blak
Leikir meistaraflokkanna á næstunni
Kvennalðið mætir Völsungi á miðvikudaginn

Á miðvikudaginn heldur kvennaliðið okkar til Húsavíkur þar sem þær mæta Völsungi klukkan 19:30. Eins og staðan er í dag er KA jafnt Völsungi og Þrótti Reykjavík í 5.-7. sæti deildarinnar með 5 stig. KA hefur spilað 8 leiki, Völsungur 6 og Þróttur 9. Völsungur á tvo leiki til góða á KA og er því mikilvægt að KA nái góðum úrslitum í þessum leik. Við hvetjum sem flesta til að skella sér til Húsavíkur til að styðja við bak kvennanna okkar!

Karlaliðið okkar heldur suður yfir heiðar aðra helgina í röð eftir að hafa unnið Stjörnuna í tvígang síðastliðna helgi. Í þetta skiptið eru andstæðingarnir HK og er fyrirfram búist við hörkuleikjum þar sem liðin skipa tvö efstu sæti deildarinnar. HK trónir á toppnum með 16 stig eftir 7 leiki en KA er einungis einu stigi á eftir en hafa leikið einum færri leik. Góð úrslit í þessum leikjum kæmu okkar mönnum því á toppinn yfir jólahátíðina. Allt KA fólk á höfuðborgarsvæðinu er því hvatt til að mæta í Fagralund í Kópavogi, klukkan 14 á laugardaginn og klukkan 13 á sunnudaginn!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband