Viðburður

Handbolti - 17:00

Lokahóf yngriflokka KA og KA/Þórs

Tímabilinu í handboltanum er að ljúka og styttist í hið skemmtilega lokahóf hjá yngri flokkum KA og KA/Þórs. Að venju verður mikið fjör, pizzuveisla og hinir ýmsu leikir í boði. Við hvetjum að sjálfsögðu alla handboltakrakka til að mæta og auðvitað foreldra og forráðamenn til að njóta skemmtunarinnar.

Lokahófið verður haldið fimmtudaginn 16. maí klukkan 17:00 og hlökkum við mikið til að sjá ykkur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband