M Sport þjónustar KA Errea fatnað

Almennt

Knattspyrnu- og blakdeild KA gerðu á dögunum samning við Errea og munu því deildirnar leika í Errea klæðnaði næstu fjögur árin. M Sport í Kaupangi mun þjónusta KA fólk með Errea vörurnar og mun salan hefjast á morgun, laugardag. Það er því um að gera að líta við í M Sport.

Þá minnum við á vefverslun Errea fyrir KA fatnað þar sem hægt er að skoða sem og panta allar vörur sem tengjast KA.

Smelltu hér til að opna KA hluta vefverslunar Errea

Opnunartímar hjá M Sport næstu daga er eftirfarandi:

21. desember (laugardagur): 12:00-21:00
22. desember (sunnudagur): 13:00-21:00
23. desember (Þorláksmessa): 12:00-23:00
24. desember (Aðfangadagur): 10:00-12:00
25. desember (Jóladagur): lokað
26. desember (Annar í jólum): lokað
27. desember (föstudagur): lokað
28. desember (laugardagur): 12:00-16:00
29. desember (sunnudagur): lokað
30. desember (mánudagur): 12:00-18:00
31. desember (Gamlársdagur): lokað
1. janúar (Nýársdagur): lokað
2. janúar (fimmtudagur): lokað


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband