Miðasala hafin á bikarslag KA/Þórs

Handbolti
Miðasala hafin á bikarslag KA/Þórs
Við þurfum á þínum stuðning að halda!

Bikarúrslitahelgin í handboltanum er framundan og KA/Þór þarf á þínum stuðning að halda! Stelpurnar mæta Haukum miðvikudaginn 4. mars klukkan 18:00 í undanúrslitunum og við ætlum að styðja þær áfram í úrslitaleikinn!

Miðasalan er hafin og er mikilvægt að þið kaupið miðana í gegnum okkar slóð sem er tix.is/kathor.

Þá verðum við með fría hópferð á leikinn ef næg þátttaka næst og þarf því að tryggja sér sæti með því að senda póst á agust@ka.is. Hlökkum til að taka yfir stúkuna og njóta bikarveislunnar, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband