Óðinn, Rakel, Rut og Unnur í A-landsliðunum

Handbolti

Óðinn Þór Ríkharðsson, Rakel Sara Elvarsdóttir, Rut Jónsdóttir og Unnur Ómarsdóttir eru öll í A-landsliðum Íslands í handbolta sem leika mikilvæga leiki á næstunni.

Karlalandsliðið mætir Austurríki í umspili um laust sæti á HM 2023 13.-16. apríl og kvennalandsliðið mætir Svíþjóð og Serbíu í undankeppni EM 2022 dagana 20.-23. apríl.

Það er náttúrulega bara frábært að við í KA og KA/Þór eigum alla þessa fulltrúa í A-landsliðunum og óskum við þeim innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis, áfram Ísland!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband