Öruggur 6-0 sigur Ţórs/KA á Selfossi

Fótbolti
Öruggur 6-0 sigur Ţórs/KA á Selfossi
Öruggur sigur í dag (mynd: Sćvar Geir)

Ţór/KA tók á móti Selfyssingum í 4. umferđ Lengjubikars kvenna í knattspyrnu í Boganum í dag. Stelpurnar höfđu unniđ góđan 2-5 sigur á ÍBV í síđasta leik og gátu međ sigri tryggt sér sćti í undanúrslitum keppninnar.

Ţór/KA 6-0 Selfoss 
1-0 Sandra Mayor ('14, víti) 
2-0 Margrét Árnadóttir ('19) 
3-0 Arna Sif Ásgrímsdóttir ('27) 
4-0 Karen María Sigurgeirsdóttir ('28) 
5-0 Sandra Mayor ('39) 
6-0 Arna Sif Ásgrímsdóttir ('44)

Okkar liđ hafđi mikla yfirburđi í leiknum og ţađ tók tćpt kortér fyrir stelpurnar ađ taka forystuna en ţađ gerđi Sandra Mayor úr vítaspyrnu og nćsti hálftíminn varđ vćgast sagt veisla fyrir stuđningsmenn okkar liđs.

Margrét Árnadóttir tvöfaldađi forystuna ađeins fimm mínútum síđar áđur en Arna Sif Ásgrímsdóttir gerđi ţriđja markiđ á 27. mínútu. Karen María Sigurgeirsdóttir skorađi svo innan viđ mínútu síđar og stađan orđin 4-0.

Sandra Mayor og Arna Sif bćttu svo báđar viđ mörkum fyrir hálfleik og voru hálfleikstölur ţví 6-0 og úrslitin vćgast sagt ráđin.

Fleiri urđu mörkin ekki í ţeim síđari en alls gerđi Donni fimm breytingar í síđari hálfleik og nýtti ţví tćkifćriđ vel í ađ koma sem flestum leikmönnum inn í spiliđ.

Stelpurnar eru ţví búnar ađ tryggja sér sćti í undanúrslitum keppninnar nú ţegar ein umferđ er eftir af riđlakeppninni en lokaleikur riđilsins er gegn Breiđablik í Boganum ţann 30. mars klukkan 15:00. Fyrir leikinn eru Blikar í 2. sćti riđilsins tveimur stigum á undan Ţór/KA og ansi líklegt ađ ţessi liđ muni mćtast í undanúrslitunum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband