Satchwell framlengir við KA um tvö ár

Handbolti
Satchwell framlengir við KA um tvö ár
Haddur og Satchwell handsala samninginn

Handknattleiksdeild KA og markvörðurinn knái Nicholas Satchwell skrifuðu í dag undir nýjan samning og er Nicholas því samningsbundinn KA næstu tvö árin. Þetta eru mikil gleðitíðindi enda hefur Nicholas komið sterkur inn í lið KA í vetur og staðið sig með prýði.

Nicholas sem er fæddur árið 1991 er landsliðsmarkvörður Færeyja og verið í lykilhlutverki í uppgangi landsliðsins undanfarin ár. Þar áður lék hann í marki Bretlands og lék til að mynda á Ólympíuleikunum í London árið 2012.

Ekki nóg með að hafa staðið sig vel innan vallar með KA liðinu þá hefur hann smellpassað inn í okkar flotta hóp og við væntumst því áfram til mikils af þessum öfluga kappa.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband