Sjóvá styrkir knattspyrnudeild KA nćstu 2 árin

Fótbolti
Sjóvá styrkir knattspyrnudeild KA nćstu 2 árin
Baldvin og Hjörvar handsala nýja samninginn

Sjóvá og knattspyrnudeild KA undirrituđu í dag nýjan tveggja ára styrktarsamning. Sjóvá hefur veriđ öflugur bakhjarl deildarinnar og erum viđ afar ţakklát ţeim fyrir áframhaldandi samstarf sem mun skipta miklu máli í knattspyrnustarfinu.

Á myndinni má sjá ţá Baldvin Ólafsson útibússtjóra Sjóvá á Akureyri og Hjörvar Maronsson formann knattspyrnudeildar KA. Báđir eru ţeir fćddir áriđ 1985 og spiluđu fyrir meistaraflokk KA. Baldvin lék alls 62 leiki fyrir KA í deild og bikar og Hjörvar lék 16 leiki. Baldvin er ađ vísu enn ađ og leikur međ Magna á Grenivík í dag.

KA undirbýr sig nú fyrir fjórđa sumariđ í röđ í efstu deild en á síđasta tímabili endađi liđiđ í 5. sćti sem er besti árangur KA frá árinu 2002. Ţađ er ljóst ađ KA ćtlar sér enn meira á nćstu árum og ţá er auk ţess unniđ gríđarlega gott starf hjá yngriflokkum félagsins í fótboltanum. Ţađ er klárt ađ samningurinn viđ Sjóvá mun hjálpa til viđ ađ halda ţeirri vegferđ áfram.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband