Steinþór Freyr framlengir út 2022

Fótbolti

Knattspyrnudeild KA og Steinþór Freyr Þorsteinsson hafa gert eins árs framlengingu á samning sínum og því ljóst að Steinþór leikur með KA á næstu leiktíð. Þetta eru miklar gleðifregnir enda er Steinþór öflugur leikmaður og flottur karakter sem hefur komið sterkur inn í félagið.

Steinþór lauk nýverið sínu fimmta tímabili með KA eftir að hafa komið frá Sandnes Ulf í Noregi fyrir sumarið 2017. Steinþór sem er 36 ára hefur leikið 76 leiki fyrir KA í deild og bikar og hefur í þeim gert fimm mörk. En það er gaman að geta þess að KA hefur ekki tapað leik þegar Steinþór hefur komist á blað.

Steinþór er fæddur árið 1985 og er uppalinn hjá Breiðablik í Kópavogi þar sem hann hóf að leika með meistaraflokki aðeins 17 ára gamall. Árið 2009 gekk hann til liðs við Stjörnuna og sló þar í gegn og var valinn í A-landslið Íslands sama ár. Steinþór hefur leikið 8 landsleiki fyrir Ísland og fjölmarga yngrilandsliðsleiki.

Það er afar jákvætt skref að halda Steinþóri áfram innan okkar raða en auk þess að vera öflugur leikmaður er hann frábær liðsmaður og flott fyrirmynd fyrir hina fjölmörgu ungu leikmenn okkar og mun halda áfram að miðla sinni miklu reynslu til þeirra.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband