Stórleikur hjá KA/Þór á morgun

Handbolti
Stórleikur hjá KA/Þór á morgun
Við þurfum á þér að halda í stúkunni!

KA/Þór leikur gríðarlega mikilvægan leik í KA-Heimilinu á morgun, þriðjudag, kl. 19:30 þegar HK kemur í heimsókn. Stelpurnar hafa staðið sig frábærlega í vetur og með sigri koma þær sér í mjög góða stöðu í baráttunni um áframhaldandi veru í deild þeirra bestu.

Bæði lið eru nýliðar í deildinni og hafa staðið sig mjög vel en KA/Þór er í 5. sæti deildarinnar með 11 stig á meðan HK er í 7. sætinu með 7 stig. Liðið sem endar í 7. sæti fer í umspil um að halda sæti sínu í deildinni og því geta stelpurnar komið sér í ansi góða stöðu með sigri á sama tíma og HK getur minnkað bilið, leikurinn er því gott dæmi um fjögurra stiga leik.

Fyrri leikur liðanna í vetur var ákaflega áhugaverður en KA/Þór leiddi 14-19 er 17 mínútur lifðu leiks. Þá hrökk allt í baklás hjá liðinu og HK gekk á lagið og vann á endanum ótrúlegan 20-19 sigur. Það er því alveg klárt að okkar lið hyggur á hefndir fyrir þann leik auk þess að hala inn mikilvægum tveimur stigum.

Við hvetjum ykkur að sjálfsögðu öll til að mæta á leikinn og styðja stelpurnar til sigurs. Liðið hefur komið mörgum sérfræðingum á óvart með stigasöfnun sinni og nú er að halda áfram að bæta við, áfram KA/Þór!

Leikurinn er svo að sjálfsögðu í beinni á KA-TV fyrir þá sem ekki komast á leikinn og er útsendingin aðgengileg hér fyrir neðan:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband