Strandhandboltamótinu aflýst

Handbolti

UPPFÆRT! Því miður þurfum við að aflýsa mótinu vegna þeirra aðstæðna sem nú eru komnar upp með Covid.

----- Upprunalega fréttin -----

Handknattleiksdeild KA í samvinnu við Icelandic Summer Games verður með strandhandboltamót í Kjarnaskógi um verslunarmannahelgina. Mótið hefur slegið í gegn undanfarin ár og stefnum við á að gera enn betur í ár!

Mótið verður spilað á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi og verður leikið í blönduðum flokki, það er að segja strákar og stelpur munu spila saman. Fjórir eru inná í hverju liði, þar af einn í marki.


Stórskemmtileg stemning myndast í sandinum!

Strandhandbolti hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi undanfarin ár og lofum við miklu stuði enda ræður léttleikinn ráðum í sandinum. Flott mark gildir tvöfalt og því um að gera að sýna sínar bestu hliðar, við lofum svo að sjálfsögðu mikilli sól!

Krakkamót á laugardeginum

Laugardaginn 31. júlí fer fram krakkamót (fædd 2006-2012) og hefst mótið klukkan 12:00. Lengd mótsins fer eftir fjölda liða. Að minnsta kosti þurfa fjórir leikmenn að vera í hverju liði og leikur markmaður með í sókninni.

Þátttökugjaldið er 3.000 krónur á hvern þátttakanda og innifalið í gjaldinu er pizzaveisla og svali að mótinu loknu. Lokað verður fyrir skráningu föstudaginn 30. júlí klukkan 21:00.

Skráning fer fram hjá agust@ka.is og er um að gera að skrá sig sem allra fyrst, langbest er að hóa hóp saman og skrá heilt lið til leiks. Mikilvægt að taka fram nafn á liði við skráningu!

Ekki missa af frábærri skemmtun um Verslunarmannahelgina á Akureyri, það er nóg um að vera bæði fyrir krakka og fullorðna. Sjoppa verður á svæðinu.

Fullorðinsmót á sunnudeginum

Á sunnudeginum 1. ágúst fer svo fram mót fyrir fullorðna (2005 módel og eldri) sem hefst klukkan 13:00 og fer lengd mótsins eftir fjölda liða á mótinu.

Þátttökugjaldið er 20.000 krónur á lið og er hámark 5 í hverju liði. Innifalið í gjaldinu er pizzuveisla og ískaldir drykkir. Lokað verður fyrir skráningu laugardaginn 31. júlí klukkan 21:00.

Skráning fer fram hjá agust@ka.is og er um að gera að skrá sig sem allra fyrst, mikilvægt að taka fram nafn á liði við skráningu!

Ekki missa af frábærri skemmtun um Verslunarmannahelgina á Akureyri, það er nóg um að vera bæði fyrir krakka og fullorðna.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband