Styrktu KA og horfðu á íslenskar íþróttir!

Fótbolti

Til að bregðast við breyttu umhverfi í íslenskri knattspyrnu vegna núverandi aðstæðna í íslensku samfélagi hafa KSÍ, ÍTF og Stöð 2 Sport ákveðið að bjóða upp á lausn sem bæði aflar félögum í Pepsi Max deildunum nýrra tekna og eflir umfjöllun um deildirnar.

Stöð 2 Sport mun að því miði afhenda hverju félagi í Pepsí Max deildum 645 áskriftir að Stöð 2 Sport Ísland, sem veitir aðgengi að umfjöllun Stöðvar 2 Sports um íslenskar íþróttir.

Meðal efnis sem er á dagskrá á Stöð 2 Sport Ísland á því tímabili er að óbreyttu eftirfarandi:

  • Pepsí Max deildin (kk og kvk)
  • Mjólkurbikar (kk og kvk)
    • Þjóðadeildin
    • Umspil fyrir EM 2021 karla
    • Undankeppni EM 2022 kvenna
  • Olís deildin í handbolta (kk og kvk)
  • Domino's deildin í körfubolta (kk og kvk)

Þú getur því styrkt Knattspyrnudeild KA á sama tíma og þú færð fullan aðgang að allri umfjöllun Stöð 2 Sport um íslenskar íþróttir. Áskriftin kostar 3.990 krónur á mánuði og er bindandi til 1. desember 2020. Hver áskrift mun færa KA 6.470 krónur og munar því heldur betur um hvern einasta áskrifanda.

Athugið að þetta tilboð gildir einungis fyrir nýja áskrifendur en ekki þá sem eru nú þegar með Stöð 2 Sport pakkann.

Nú hefur verið bætt við að þeir sem eru nú þegar áskrifendur geta bundið sig í áskrift næstu 6 mánuðina og þannig styrkt KA.

Smelltu hér til að skrá þig í áskriftina

Mikilvægt að haka við KA í aðildarfélag!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband