Styrktu KA/Þór með glæsisokkum!

Handbolti

KA/Þór leikur í fyrsta skiptið í Evrópukeppni á næstu dögum er stelpurnar sækja lið KFH Istogu heim. Istogu er meistari í Kósóvó og verða báðir leikir einvígisins spilaðir í Kósóvó. Það er því krefjandi en jafnframt spennandi verkefni hjá stelpunum framundan.

Að taka þátt í stóru Evrópuverkefni kostar hinsvegar skildinginn og því eru stelpurnar nú farnar af stað með sokkasölu í samstarfi við Smart Socks. Smart Socks eru þekktir fyrir vandaða en jafnframt litríka og afar skemmtilega sokka.

Parið kostar einungis 1.500 krónur og er hægt að kaupa bæði hefðbundna sokka og jólasokka. Allar pantanir fara í gegnum siguroli@ka.is og jonsi@thorsport.is.

Stelpurnar eru heldur betur klárar í slaginn enda tryggðu þær sér sjálfan Bikarmeistaratitilinn á dögunum og eru því ríkjandi Íslands-, Bikar- og Deildarmeistarar. Verkefnið gegn Istogu hefst þann 15. október í Kósóvó og síðari leikurinn fer fram daginn eftir þann 16. Liðið sem hefur betur samanlagt fer áfram í næstu umferð.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband