Sunna til Sviss og Ásdís til Svíþjóðar

Handbolti
Sunna til Sviss og Ásdís til Svíþjóðar
(mynd: Þórir Tryggva)

Það eru spennandi tímar framundan hjá þeim Sunnu Guðrúnu Pétursdóttiu og Ásdísi Guðmundsdóttur en þær halda báðar á ný mið á komandi handboltavetri. Báðar eru þær uppaldar hjá KA/Þór og verið í lykilhlutverki í velgengni liðsins undanfarin ár.

Sunna Guðrún gekk til liðs við Svissneska liðið GC Amicitia Zürich en hún þekkir vel til í Sviss en tímabilið 2019-2020 lék hún með liði Zug. Sunna sem er 24 ára gömul hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 160 leiki fyrir KA/Þór í deild og bikar og verður svo sannarlega spennandi að fylgjast með framgöngu hennar í Sviss.

Sunna steig heldur betur upp á síðustu leiktíð í fjarveru Mateu Lonac og sýndi þar og sannaði að hún er ákaflega öflugur markvörður. Hún hefur verið viðloðandi B-landslið Íslands undanfarin ár og ekki spurning að hún mun halda áfram að þróa sinn leik á nýjum slóðum í Zürich.

Ásdís Guðmundsdóttir gekk í dag í raðir sænska liðsins Skara HF. Fyrr í sumar gekk Aldís Ásta Heimisdóttir til liðs við Skara og fylgjast þær vinkonur því áfram að. Ásdís hefur leikið 168 leiki fyrir KA/Þór í deild og bikar en rétt eins og Sunna steig hún ung sín fyrstu skref í meistaraflokki.

Ásdís hefur undanfarin ár verið að koma sterk inn í A-landslið Íslands og er án nokkurs vafa einn besti sóknarlínumaður landsins. Það verður gaman að fylgjast með framgöngu hennar og Aldísar hjá Skara í vetur og vonandi halda þær áfram að eflast og vinna sér í kjölfarið enn stærra hlutverk í A-landsliðinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband