Undanúrslit Bikars hjá 3. kvenna í dag

Handbolti

Stelpurnar í 3. flokki KA/Þórs taka í dag á móti HK í undanúrslitum Bikarkeppni HSÍ en leikurinn fer fram klukkan 19:00 í KA-Heimilinu og ljóst að liðið sem vinnur er komið í úrslitaleikinn í Laugardalshöllinni.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og styðja stelpurnar til sigurs en þær hafa gert mjög vel í að komast í undanúrslitin og slógu meðal annars sterkt lið Fram úr leik í síðustu umferð. Það má búast við hörkuleik í dag sem verður í beinni á KA-TV fyrir þá sem ekki komast í KA-Heimilið, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband