Öruggur sigur KA á Stjörnunni U

Handbolti
Öruggur sigur KA á Stjörnunni U
Áki Egilsnes međ eitt af 10 mörkum sínum í leiknum

Í gćr tók KA á móti Ungmennaliđi Stjörnunnar í Grill 66 deild karla. KA liđiđ mćtti af miklum krafti til leiks og ţrátt fyrir ađ Stjörnupiltar hafi skorađ fyrsta mark leiksins var stađan orđin 6-1 fyrir KA eftir tíu mínútna leik. Yfirburđir KA liđsins héldu áfram og ţegar flautađ var til leikhlés munađi níu mörkum á liđunum, stađan 14-5 fyrir heimamenn.


Hreinn Ţór Hauksson var gríđarlega sterkur í vörninni

Eins og tölurnar bera međ sér komust Stjörnumenn lítiđ áfram gegn sterkri vörn KA og ţar fyrir aftan var Jovan Kukobat í gríđarlegum ham. Jovan tók níu skot, ţar af eitt vítakast og skorađi auk ţess eitt mark. Áki Egilsnes skorađi 6 mörk og Sigţór Árni Heimisson 3 mörk í hálfleiknum.

Tímalína fyrri hálfleiks

Seinni hálfleikurinn var frekar lítiđ fyrir augađ, einungis ţrjú mörk voru skoruđ fyrstu tíu mínúturnar og tvö ţeirra voru eign Stjörnumanna. Í kjölfariđ tókst Stjörnumönnum ađ minnka lítillega forskot heimamanna og međ ţví ađ skora tvö síđustu mörk leiksins ađ minnka muninn niđur í fimm mörk, lokaniđurstađan ţví öruggur sigur heimamanna 22-17.

Jovan Kukobat hélt áfram stórleik sínum í markinu en hinn ungi Svavar Ingi Sigmundsson stóđ í markinu síđustu fimm mínúturnar. Áki Egilsnes hélt áfram ađ rađa inn mörkum og var ađ lokum valinn mađur KA liđsins.

Mörk KA: Áki Egilsnes 10, Sigţór Árni Heimisson 4, Dagur Gautason 2, Andri Snćr Stefánsson 1, Dađi Jónsson 1, Elfar Halldórsson 1, Jovan Kukobat 1, Jóhann Einarsson 1 og Jón Heiđar Sigurđsson 1 mark.
Jovan Kukobat varđi 19 skot, ţar af 2 vítaköst.

Mörk Stjörnunnar U: Birgir Steinn Jónsson 7, Hörđur Kristinn Örvarsson 5, Gunnar Valdimar Johnsen 4 og Bjarki Rúnar Sverrisson 1 mark.

Tímalína seinni hálfleiks

KA er ţví enn međ fullt hús stiga á toppi deildarinnar, međ 12 stig eftir sex leiki. Nćsta verkefni strákanna er útileikur gegn Mílunni en sá leikur er liđur í Coca Cola bikarnum og fer fram á miđvikudaginn á Selfossi. Ţar á eftir koma fjórir útileikir í deildarkeppninni ţannig ađ ţađ er ekki von á heimaleik fyrr en 27. janúar.

Ţórir Tryggvason var mćttur međ myndavélina og sendi okkur myndir sem er hćgt ađ skođa međ ţví ađ smella hér.

Leikurinn var í beinni útsendingu á KA-TV og hćgt ađ horfa á leikinn í spilaranum hér ađ neđan:


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is