Karlarnir mæta Aftureldingu í tvígang um helgina

Blak
Karlarnir mæta Aftureldingu í tvígang um helgina
Karlalið KA tímabilið 2017-2018

Um helgina fær karlalið KA bikarmeistara síðasta tímabils, Aftureldingu í heimsókn í Mizunodeildinni. Spilaðir verða tveir leikir, sá fyrri á laugardagskvöldið klukkan 19 og sá síðari á sunnudaginn klukkan 13.

KA er í þriðja sæti deildarinnar með 4 stig eftir 2 leiki og Afturelding vermir botnsætið með 0 stig eftir 3 leiki.

Á síðasta tímabili unnu KA menn allar sínar viðureignir gegn Aftureldingu en bæði lið hafa breyst töluvert síðan þá með brottfalli ýmissa leikmanna og komu annarra. Það verður því spennandi að sjá hvort liðið verður sterkara um helgina og hvetjum við alla blakaðdáendur sem og allt KA fólk til að mæta og styðja við bak strákanna okkar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is