Hallgrímur og Helena íþróttafólk KA

Almennt

Hallgrímur Mar Steingrímsson og Helena Kristin Gunnarsdóttir voru í gær kjörin íþróttafólk KA árið 2023.

Helena Kristín var ein af lykilmanneskjunum í framúrskarandi blakliði KA þegar stelpurnar okkar unnu alla þá titla sem hægt var að vinna tímabilið 2022-2023. Stelpurnar urðu Meistarar meistaranna, deildarmeistarar, bikarmeistarar og að lokum Íslandsmeistarar. Helena var í lok tímabils valin í lið ársins í stöðu kants auk þess að vera valin besti leikmaður Úrvalsdeildarinnar af Blaksambandi Íslands.

Hallgrímur Mar átti gott tímabil með KA í Bestu deildinni. Hann var stoðsendingarhæsti leikmaður Bestu deildarinnar með 13 stoðsendingar sem var jöfnun á stoðsendingameti efstu deildar. Í deild, bikar og Evrópukeppni skoraði hann 10 mörk. Hallgrímur Mar var lykilmaður í KA liðinu sem fór alla leið í þriðju umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar og í bikarúrslit.  Erfitt er að finna félagsmet í meistaraflokki KA í knattspyrnu sem Hallgrímur Mar á ekki en hann er leikjahæsti, stoðsendingahæsti og markahæsti leikmaður KA frá upphafi


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is