Brons á Neskaupstað

Blak

KA átti fulltrúa í 3. flokki stúlkna á Neskaupstað sl. helgi þar sem fram fór Íslandsmót í 3., 5. og 6. fokki. Einn drengur, Brimar Jörvi Guðmundsson bjargvættur var fenginn til að fylla upp í liðið ásamt tveimur 4. flokks stúlkum. Krakkarnir spiluðu í a riðli, þrjá leiki á laugardaginn og unnu fyrsta leikinn 2-0 en töpuðu næstu tveim naumlega í æsispennandi oddaleikjum, annar þeirra endaði í 15-17 en hin í 12-15. Þau áttu svo einn leik á sunnudaginn sem einnig var mjög jafn og endaði með tapi 14-16 í oddaleik. Óhætt er að segja að krakkarnir hafi nýtt leikina vel og komu heim með bronsverðlaun. Við óskum liðinu til hamingju með flottan árangur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband