Fannar Hafsteinsson framlengir samning sinn við KA

Fótbolti

Þau gleðitíðindi bárust í dag að Fannar Hafsteinsson, markvörður, hafi framlengt samning sinn við félagið til næstu þriggja ára.

Fannar er uppalinn KA maður og hefur leikið með öllum yngri flokkum KA, bæði í fótbolta og handbolta. Fannar er fæddur árið 1995 og spilaði fyrsta leikinn sinn aðeins 17 ára gamall fyrir KA, eða árið 2012. 

Hann hefur einnig leikið 19 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur verið viðloðandi áframhaldandi veru í þessum landsliðum. 

Heimasíðan óskar bæði félaginu og Fannari innilega til hamingju með samninginn og er frábært að vera búið að tryggja sér þjónustu Fannars næstu þrjú árin. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband