Góđur sigur á Fjölni

Fótbolti
Góđur sigur á Fjölni
Elfar Árni fagnar markinu sínu (mynd: Sćvar Geir)

KA lagđi Fjölnismenn ađ velli í kvöld á Akureyrarvelli 2-0. Stađan í hálfleik var 1-0 fyrir KA og bćtti liđiđ viđ einu marki í ţeim síđari og vann ađ lokum sannfćrandi sigur.

KA 2 – 0 Fjölnir

1 – 0 Elfar Árni Ađalsteinsson (’19) Stođsending: Emil Lyng
2 – 0 Emil Sigvardsen Lyng  (’58) Stođsending: Hallgrímur Mar

Liđ KA:

Rajko, Bjarki Ţór, Guđmann, Ívar Örn, Darko, Aleksandar, Almarr, Ásgeir, Hallgrímur Mar, Emil og Elfar Árni.

Bekkur:

Aron Dagur, Baldvin, Ólafur Aron, Hrannar Björn, Daníel, Archange og Áki.

Skiptingar:

Darko út – Ólafur Aron inn (’31)
Emil út – Archange inn (’76)
Ásgeir út – Baldvin inn (’93) 

Leikurinn í kvöld var fyrsti heimaleikur KA í efstu deild í 13 ár og var eftirvćntingin fyrir leiknum mikil í kringum félagiđ. Ţađ virtist hins vegar hafa lítil áhrif á leikmenn liđsins sem voru rólegir og yfirvegađir í öllum sínum ađgerđum rétt innstilltir á verkefni kvöldsins.

KA komst verđskuldađ yfir eftir 19 mínútna leik ţegar ađ Darko átti langt innkast sem Emil skallađi áfram á Elfar Árna sem skallađi boltann í markiđ af stuttu fćri.  Elfar Árni sem fyrr eins og gammur í teignum og kom KA í 1-0.

Eftir rúmlega hálftíma leik var brotiđ harkalega á Darko viđ hliđarlínu og ţurfti hann ađ fara útaf meiddur sökum ţess. Í hans stađ kom Ólafur Aron inn á miđjuna og Aleksandar var fćrđur í miđvörđin og Ívar í bakvörđin.  

KA liđiđ sem fyrr elfdist viđ mótlćđiđ og ţeir leikmenn sem komu inn stóđu fyrir sínu. Allir međ allt á hreinu. KA tókst hins vegar ekki ađ bćta viđ öđru marki og stađan ţví 1-0 KA í vil í hálfleik.

Síđari hálfleikur var rétt hafinn ţegar ađ Hallgrímur Mar var óvćnt kominn í dauđafćri eftir ađ boltinn skopađi fyrir hann inn í markteig og skot hans af stuttu fćri í slánna og yfir.

Tíu mínútum síđar átti Hallgrímur Mar svo frábćra fyrirgjöf á Emil Lyng sem kom á hárréttum tíma á fjćrstöngina og skilađi boltanum í netiđ af stuttu fćri og jók forystu KA í 2-0.

Eftir markiđ datt KA liđiđ ađeins aftar og Fjölnismenn sóttu eilítiđ en uppskáru ekki mark og 2-0 sigur KA ţví stađreynd. KA liđiđ sýndi í dag mikinn styrkleika ađ ţrátt fyrir mikil meiđsli í leikmannahópnum ţá var liđiđ ţétt aftur sem fyrr og skeinuhćttir sóknarlega. Mjög erfitt var ađ velja mann leiksins ţar sem liđsframistađan var mögnuđ og lögđu allir leikmenn sitt ađ mörkum í kvöld.

KA-mađur leiksins: Aleksandar Trninic (Var magnađur á miđjunni og vörninni í dag. Sterkur í loftinu og návígum og sem fyrr međ hárnákvćmar sendingar fram völlinn.)

Stutt er í nćsta leik KA. Hann er á miđvikudaginn í bikarnum ţegar ađ KA fćr ÍR í heimsókn í 32-liđa úrslitum Borgunarbikarsins. Hefst leikurinn kl. 18:00 og hvetjum viđ alla KA-menn ađ fjölmenna á völlinn. Áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband