Flýtilyklar
KA tekur á móti Val í Pepsi-deildinni
KA fær verðandi Íslandsmeistara í heimsókn fimmtudaginn 14 september. Valur vann fyrri leik liðanna 1-0 í hörkuleik fyrr í sumar með sjálfsmarki okkar manna. Valur er það lið sem hefur verið hvað best í allt sumar og hefur náð að spila nokkuð jafnan leik meðan önnur lið hafa verið nokkuð sveiflukennd. Valsliðið er með 9 stig út úr síðust 3 leikjum meðan KA-menn hafa fengið 6 stig úr síðustu 3 leikjum. Callum Williams tekur út leikbann eftir rautt spjald í síðast leik en vonandi er Guðmann búinn að jafna sig af meiðslum sem hafa haldið honum frá vellinum frá því í lok maí.
Leikurinn fer að sjálfsögðu fram á Akureyrarvelli og hefst kl 17.00. Hvetjum alla til þess að mæta í gulu og hvetja okkar menn áfram. Hamborgarar á grillinu frá 16.30.
ÁFRAM KA!!