KA vs Keflavík

Almennt
KA vs Keflavík
Líf og fjör í KA á laugardaginn

KA tekur á móti Keflavík á laugardaginn 25.mars nk á KA-vellinum.  Leikurinn er lokaleikur beggja liða í Lengjubikarnum og sker úr um hvort liðið fer áfram í 8 liða úrslit keppninnar.  KA er í dag í öðru sæti riðilsins með 9 stig meðan Keflavíkur kemur þar skammt á hæla okkar með 7 stig og getur með sigri stolið sætinu í 8 liða úrslitum af okkur.

Bæði Guðmann og Aleksandar verða í leikbanni í leiknum ásamt því að Davíð er enn frá vegna meiðsla og því nokkuð ljóst að Tufa þarf að finna einhverja nýja lausn í miðverðinum í þessum leik.  

Við hvetjum sem flesta KA-menn til þess að mæta á völlin og hvetja okkar drengi til sigurs og áfram í Lengjubikarnum.  Síðar um kvöldið verður síðan Herrakvöld KA sem enginn má missa af.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482 | Hafa samband