Júdóæfingar falla niður þessa viku

Almennt | Júdó

Kæru foreldrar og iðkendur í júdó.
Vegna aukinna smita í grunnskólum Akureyrar hefur stjórn júdódeildar ákveðið að fella niður æfingar hjá grunnskólakrökkum út komandi viku (4. - 8. október). Við vonum að á þessum tíma dragi verulega úr smitum og fólki í sóttkví. Þetta er ekki auðveld ákvörðun en við teljum hana rétta. Júdó er mikil návígisíþrótt þannig að ef smit kæmi upp í gegnum júdóið er mjög líklegt að margir smitist á sama tíma. Vonandi lagast þetta fljótt.

Með vinsemd og virðingu, Stjórn og þjáfarar júdódeildar KA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is