Í dag: Akureyri - Selfoss í beinni á Akureyri-TV

Handbolti

Það er engin lognmolla í Akureyskum handbolta þessa dagana. Akureyri á gríðarlega mikilvægan heimaleik á morgun, fimmtudag gegn Selfyssingum og óhætt að stigin sem þar eru í boði séu gulls ígildi fyrir bæði lið. Í dag eru liðin í 8. og 9. sæti deildarinnar en sigurvegarinn á kost á að klifra upp um þó nokkur sæti.

Frá áramótum hefur Akureyri leikið þrjá heimaleiki og unnið góða sigra í þeim öllum, tvisvar gegn Val og eftirminnilegan sigur á Aftureldingu. Menn þurfa þó að vera á tánum því skemmst er að minnast þess að liðið fékk skell í síðasta heimaleiknum í desember þegar Fram kom, sá og sigraði býsna sannfærandi.

Selfyssingar byrjuðu tímabilið með látum en hefur ekki alveg gengið upp á það besta í síðustu leikjum. Tvö jafntefli í síðustu sex leikjum er klárlega undir væntingum á þeim bænum og þeir munu örugglega gefa allt í að komast á sigurbraut á ný.

Þjálfari Selfyssinga er sem kunnugt er Akureyringurinn Stefán Árnason og bjóðum við hann að sjálfsögðu velkominn á heimaslóðir.


Stefán Árnason þjálfari Selfyssinga

Liðin hafa mæst tvisvar í deildinni það sem af er, Akureyri vann útileikinn á Selfossi 29-32 og heimaleikinn 25-32. Hörkuleikir báðir og ekkert gefið eftir.

Við verðum að sjálfsögðu með leikinn í beinni útsendingu á Akureyri-TV, leikurinn sjálfur hefst klukkan 19:00 og útsendingin nokkrum mínútum fyrr.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FYLGJAST MEÐ ÚTSENDINGUNNI.

Það er síðan stutt í næsta verkefni hjá liðinu því strax á sunnudaginn halda strákarnir suður í Hafnarfjörð þar sem þeir mæta toppliði Hauka á Ásvöllum.

1. deild karla: Akureyrarslagur á föstudaginn
Það er svo áhugaverður leikur í 1. deild karla á föstudagskvöldið þegar Akureyri U og Hamrarnir mætast í Íþróttahöllinni. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og ljóst að þar verður ekkert gefið eftir enda má segja að montrétturinn í bænum sé undir.

Liðin mættust í eftirminnilegum leik í nóvember þar sem Akureyri U vann eins marks sigur, 24-25. Í leikslok fengu strákarnir bikar frá Hömrunum þar sem Akureyri U var lýstur Akureyrarmeistari 2016. Jafnframt hétu Hamrarnir því að þeir ætluðu að endurheimta bikarinn í næsta leik þannig að á föstudagskvöldið kemur í ljós hvort liðið verður Akureyrarmeistari 2017.

Við vonumst til að sjá þig á Selfoss-leiknum á fimmtudaginn og síðan er tilvalið að hefja helgina í Höllinni á föstudagskvöldið.
Leikmenn og stjórn Akureyrar Handboltafélags.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is