Handboltaleikjaskólinn hefst 4. febrúar

Handbolti

Handboltaleikjaskóli KA fyrir hressa krakka fædd 2018 til 2021 fer aftur af stað sunnudaginn 4. febrúar næstkomandi. Viðtökurnar hafa verið frábærar og hefur heldur betur verið gaman að fylgjast með krökkunum kynnast handbolta á skemmtilegan hátt.

Eins og undanfarin ár fer skólinn fram í íþróttasal Naustaskóla klukkan 10:00 á sunnudögum. Fyrsti tími þessa nýja árs er eins og fyrr segir sunnudaginn 4. febrúar. Við hlökkum svo sannarlega til að sjá ykkur aftur þá.

Skráning í skólann fer fram í gegnum Sportabler en nýir iðkendur eru að sjálfsögðu velkomnir í prufutíma.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is