1.deild karla: Akureyri U - ÍR á laugardag

Handbolti

Á laugardaginn klukkan 15:00 tekur Ungmennalið Akureyrar á móti ÍR en sá leikur er liður í 1. deild karla. Ungmennaliðið vann frækinn útisigur á Mílunni í síðustu umferð og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim gengur gegn sögufrægu liði ÍR.

Það er óhætt að segja að nokkur tengsl séu á milli ÍR og Akureyrar því ÍR liðið leikur undir stjórn Bjarna Fritzsonar, fyrrum leikmanns og þjálfara Akureyrar. Fyrir þetta tímabil fengu ÍR-ingar góðan liðsstyrk héðan að norðan þegar Halldór Logi Árnason og Valþór Guðrúnarson gengu til liðs við Bjarna Fritz.


Bjarni Fritzson, Halldór Logi og Valþór Atli í Akureyrarbúningunum haustið 2013

Leikurinn verður í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 15:00, það er frítt á leikinn.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is