11 fulltrúar KA í yngri landsliðunum

Handbolti
11 fulltrúar KA í yngri landsliðunum
Rakel Sara og Helga Kristín eru í U16 hópnum

Yngri landsliðin í handboltanum munu æfa helgina 29. september til 1. október. KA á hvorki fleiri né færri en 11 fulltrúa í hópunum sem er stórkostlegt og óskum við þeim til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.

Helga María Viðarsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir eru í U-16 hóp kvenna en þjálfarar þeirra eru þau Rakel Dögg Bragadóttir og Ólafur Víðir Ólafsson.

Arnór Ísak Haddsson, Haraldur Bolli Heimisson og Ragnar Sigurbjörnsson eru í U-16 hóp karla en þjálfari þeirra er Maksim Akbashev.

Margrét Einarsdóttir, Ólöf Marín Hlynsdóttir og Svala Svavarsdóttir eru í U-18 hóp kvenna en þjálfarar þeirra eru Haraldur Þorvarðarson og Sigurgeir Jónsson.

Dagur Gautason og Jónatan Marteinn Jónsson eru í U-18 hóp karla en þjálfari þeirra er Heimir Ríkarðsson.

Ásdís Guðmundsdóttir er í U-20 hóp kvenna og þjálfari hennar er Stefán Arnarson.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is