Félagsfundur í KA-Heimilinu 30. nóvember

Almennt

Aðalstjórn KA boðar til félagsfundar fimmtudaginn 30. nóvember klukkan 19:30 í félagsheimili KA-Heimilisins.

Aðalstjórn félagsins hefur samþykkt að mæla með og leggja fyrir félagsmenn stofnun fimleikadeildar innan KA. Í samræmi við lög félagsins eru félagar í KA því boðaðir á félagsfund 30. nóvember næstkomandi þar sem tillagan verður kynnt og lögð fyrir.

Á fundinum mun aðalstjórn einnig kynna stöðu uppbyggingarmála hjá KA og þau verkefni sem framundan eru hjá félaginu.

Fyrir hönd aðalstjórnar KA
Eiríkur S. Jóhannsson
Formaður KA


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is