Helgi Rúnar Bragason er fallinn frá

Almennt

Framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Akureyrar, Helgi Rúnar Bragason, er látinn aðeins 47 ára gamall eftir hetjulega baráttu við krabbamein. Helgi Rúnar var ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra ÍBA í mars 2018 og gegndi hann stöðunni allt til hins síðasta.

Helgi Rúnar var gríðarlega öflugur í íþróttastarfi Akureyrar, sýndi starfinu mikinn áhuga og metnað og dugnaður Helga Rúnars duldist engum sem með honum starfaði. Fyrst og fremst var Helgi Rúnar þó frábær manneskja og hans verður sárt saknað en minning hans mun ávallt lifa innan íþróttalífsins á Akureyri og víðar.

Knattspyrnufélag Akureyrar færir aðstandendum Helga Rúnars sínar dýpstu samúðarkveðjur.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is