Leikir helgarinnar | Nóg um að vera heima og heiman

Almennt

Nóg er um að vera í KA-heimilinu um helgina, eins og aðrar helgar ársins. Þá fara einnig nokkur KA og KA/Þór út á land til að keppa.

Í kvöld, föstudag, mun KA taka á móti Þrótti í Grill66 deild karla í KA-heimilinu. Leikurinn hefst kl. 20:15

Á morgun, laugardag mætir KA sterku liði HK í gríðarlega mikilvægum leik í Mizunodeild karla í blaki. Þessi lið mætast síðan aftur á sunnudaginn en þetta eru úrslitaleikir um deildarmeistaratitil, sem og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni sem er handan við hornið. Leikurinn á laugardaginn er kl. 14:00 og sunnudaginn kl. 13:00

KA U tekur á móti Fram U kl 16:00 á laugardaginn í KA-heimilinu en sá leikur er í 2. deild karla í handbolta. Svo klukkan 17:00 mætir meistaraflokkur karla liði ÍR í Lengjubikarnum í knattspyrnu. Sá leikur fer fram í Boganum. 

Á sunnudaginn tekur Þór/KA á móti Val í Lengjubikar kvenna í Boganum kl. 15:00 og á sama tíma í KA-heimilinu keppir 4. fl karla gegn ÍR tvo leiki í handbolta.

KA/Þór, bæði meistaraflokkur og 3. flokkur kvenna ferðast til Reykjavíkur til að keppa sína leiki. KA/Þór leikur gegn UMFA í Mosfellsbæ kl. 16:00 á laugardaginn og 17:30 mætir 3. fl kvenna liði Fram í Safamýri.

Á sunnudaginn keppir síðan 3. flokkur kvenna í KA/Þór aftur gegn Fram kl. 12:00 og 13:30 í Safamýri.

Við hvetjum alla Akureyringa að líta á íþróttavöllinn um helgina og hvetja sín lið. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is