KA/Þór tekur á móti ÍR á morgun (laugardag)

Handbolti

KA/Þór tekur á móti ÍR í 1. deild kvenna í handknattleik á morgun, laguardag. Leikurinn hefst kl. 14:00 í KA-heimilinu.

Með sigri getur KA/Þór tyllt sér á toppinn í 1. deildinni, það er því til mikils að vinna. Þetta verður erfiður leikur en ÍR er aðeins tveimur stigum á eftir stelpunum okkar. Við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að mæta á völlinn og styðja stelpurnar okkar til sigurs. 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is