Ingvar formaður með föstudagsframsöguna

Almennt
Ingvar formaður með föstudagsframsöguna
Fróðlegt hádegi framundan á föstudaginn!

Ingvar Már Gíslason formaður KA mun sjá um föstudagsframsöguna þessa vikuna. Hann mun fara yfir hin ýmsu mál tengdu félaginu og ljóst að enginn félagsmaður KA ætti að láta þetta framhjá sér fara.

Vídalín veitingar munu að sjálfsögðu bjóða upp á veislumat en að þessu sinni verða kryddlegnar svínalundir ásamt meðlæti á aðeins 2.200 krónur.

Maturinn hefst klukkan 12:00 en áætlað er að kynning Ingvars hefjist klukkan 12:15 og taki um hálftíma. Hlökkum til að sjá ykkur í KA-Heimilinu á föstudaginn!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is