KA-Þór í bikarúrslitum 3. flokks í dag

Fótbolti
KA-Þór í bikarúrslitum 3. flokks í dag
Strákarnir eru klárir í slaginn!

Það er enginn smá leikur í dag á KA-vellinum þegar KA og Þór mætast í bikarúrslitum Norð-Austurlands 3. flokks karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst klukkan 16:30 og má búast við svakalegum leik eins og alltaf þegar montrétturinn í bænum er undir og hvað þá bikar að auki.

Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á KA-svæðið og styðja strákana okkar til sigurs. Strákarnir stóðu í ströngu í A-deildinni í sumar og stefna klárlega á að enda sumarið með sjálfum bikarnum.

Fyrir þá sem komast ómögulega á leikinn þá verður hann í beinni á KA-TV þannig að það er um að gera að fylgjast vel með gangi mála!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is