Örfréttir KA - 9. apríl 2018

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Blak

Eftir smá páskafrí þá rennum við örfréttunum aftur í gang og förum yfir það helsta úr KA starfinu að undanförnu.

Blak

KA er komið í úrslit á Íslandsmótinu í blaki eftir að hafa unnið Aftureldingu 3-1 í einvígi liðanna í undanúrslitum. Strákarnir hafa unnið bæði Deildar- og Bikarkeppnina á tímabilinu og mæta nú HK í slagnum um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.

Þá var valið í æfingahóp Íslenska landsliðsins í blaki á dögunum sem tekur þátt í undankeppni EM 2019 og á KA 5 fulltrúa í hópnum. Þetta eru þeir Ævarr Freyr Birgisson, Alexander Arnar Þórisson, Benedikt Rúnar Valtýsson, Sigþór Helgason og Gunnar Pálmi Hannesson. Óskum þeim að sjálfsögðu til hamingju með valið.

Fótbolti

Í fótboltanum féll KA úr leik í undanúrslitum Lengjubikarsins á Skírdag þegar liðið tapaði gegn Grindavík. Gunnar Þorsteinsson gerði eina mark leiksins snemma í síðari hálfleik. KA liðið fór í kjölfarið í æfingaferð til Spánar þar sem liðið lék æfingaleiki við Keflavík og HK.

Ný stjórn var kjörin hjá Knattspyrnudeild KA og skipar hún nú 7 meðlimi. Eiríkur S. Jóhannsson lét af formennsku og Hjörvar Maronsson tekur við keflinu.

Bjarni Mark Antonsson gekk aftur í raðir KA en hann hefur undanfarin tvö ár leikið q með Kristianstad í Svíþjóð. Bjóðum Bjarna velkominn aftur í félagið.

Handbolti

Í handboltanum þá hampaði 4. flokkur karla Deildarmeistaratitlinum eftir 29-21 sigur á Þór í lokaumferð deildarinnar. Þetta er þriðja árið í röð sem strákarnir hampa titli og óskum við þeim til hamingju. Framundan er baráttan um Íslandsmeistaratitilinn.

Leikmaður liðsins, Arnór Ísak Haddsson, keppti svo á móti í Grikklandi með U-16 ára landsliði Íslands. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og fóru alla leið í úrslitaleikinn sem tapaðist á lokasekúndunni gegn Króötum. Frábær árangur hjá strákunum og lék Arnór Ísak stórt hlutverk í liðinu.

Þá varð 4. flokkur KA/Þórs Deildarmeistari í 2. deild en stelpurnar unnu 14 af 15 leikjum sínum í deildinni, frábær árangur og óskum við þeim einnig til hamingju!

Næstu leikir

Framundan eru stórleikir hjá okkar liðum. Blaklið KA tekur á móti HK á þriðjudaginn í fyrsta leik liðanna í slagnum Íslandsmeistaratitilinn. Liðin mætast svo aftur í Kópavogi á fimmtudag.

Íslandsmeistarar Þór/KA leika gegn Breiðablik í undanúrslitum Lengjubikarsins á föstudaginn og fer leikurinn fram á Leiknisvelli.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is