Sæþór lánaður til Völsungs

Fótbolti
Sæþór lánaður til Völsungs
Sæþór klárar tímabilið með Völsung

Knattspyrnudeild KA og Völsungur hafa komist að samkomulagi um að framherjinn ungi hann Sæþór Olgeirsson verði lánaður til Völsungs út tímabilið. Sæþór er uppalinn hjá Völsungum og gekk í raðir KA fyrir sumarið. Sæþór kom við sögu í 6 leikjum í deild og bikar með KA á tímabilinu.

Sæþór mun leika í 2. deildinni með Húsvíkingunum en hann sló rækilega í gegn í deildinni í fyrra þegar hann gerði 23 mörk í 21 leik. Völsungar eru í harðri baráttu um að komast upp í Inkasso deildina og er ljóst að koma Sæþórs mun styrkja þá í þeirri baráttu. Þá er auðvitað frábært fyrir ungan leikmann að fá meiri spiltíma.

Við óskum Sæþóri góðs gengis út sumarið og hlökkum til að fá hann aftur til liðs við okkur í KA að sumrinu loknu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is