Svekkjandi tap í Grindavík

Fótbolti
Svekkjandi tap í Grindavík
Mark Grímsa dugði ekki í Grindavík

KA sótti Grindvíkinga heim í nýliðaslag í 10. umferð Pepsi deildar karla. Bæði lið höfðu byrjað mótið af krafti og var búist við hörkuleik sem úr varð.

Grindavík 2 - 1 KA
0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('19)
1-1 Marinó Axel Helgason ('70)
2-1 Andri Rúnar Bjarnason ('81, víti)


Í umfjöllun RÚV um leikinn má sjá mörkin og helstu atvik

Lið KA:

Rajko, Bjarki Þór, Davíð Rúnar, Callum, Darko, Aleksandar, Almarr, Hallgrímur, Emil Lyng, Ásgeir og Elfar.

Bekkur:

Aron Dagur, Baldvin, Ólafur Aron, Steinþór Freyr, Ívar Örn, Hrannar og Daníel.

Skiptingar:

Ásgeir út – Steinþór Freyr inn (’76)
Bjarki Þór út – Daníel inn (’83)
Hallgrímur Mar út – Hrannar Björn inn (’87)

Davíð Rúnar Bjarnason kom í fyrsta skiptið inn í byrjunarlið KA og lék í miðri vörninni ásamt Callum og því gat Aleksandar Trninic loks spilað aftur á miðjunni.

KA hóf leikinn af gríðarlegum krafti og var alveg ljóst að menn ætluðu sér að ná marki snemma. Heimamenn voru á sama tíma í vandræðum og lágu vel til baka til að verjast sóknarlotum okkar manna.

En markið lá í loftinu og það kom á 19. mínútu þegar að Almarr vann boltann við hliðarlínuna og í kjölfarið átti Ásgeir sendingu á Hallgrím Mar sem ákvað að þruma að marki af 25 metra færi og boltinn söng í netinu, algjörlega óverjandi fyrir Jajalo í markinu.

Grindvíkingar áttu stuttu síðar sína fyrstu sókn og Davíð Rúnar braut á Andra Rúnari sem hefur verið funheitur fyrir framan markið og vítaspyrna dæmd. En Andra brást bogalistin og skaut í stöng og út.

Heimamenn sóttu í sig veðrið í kjölfarið á sama tíma og KA virtist bakka og vilja verja forskotið. En á 40. mínútu átti Jajalo markvörður Grindvíkinga hörmulega sendingu fram sem fór beint á Emil Lyng, Jajalo var langt frá markinu en Emil vippaði of hátt og skaut því yfir markið.

Staðan var því 0-1 okkar mönnum í vil þegar flautað var til hálfleiks en það voru nokkrar blikur á lofti enda höfðu heimamenn náð fínum tökum á leiknum á sama tíma og okkar menn voru farnir að verja forskotið.

Í upphafi síðari hálfleiks átti Aron Freyr óvænt skot fyrir utan teig sem small í þverslánni og strax mínútu síðar var mikil hætta í teig KA eftir að Rajko hafði ekki náð að kýla boltann í burtu en Elfar Árni gerði vel í að koma sér fyrir skot Andra Rúnars.

Það var svo á 70. mínútu að jöfnunarmarkið kom en Ásgeir átti slaka móttöku og Marinó Axel Helgason náði boltanum við teig KA, tók þríhyrningsspil við Andra Rúnar og kláraði vel.

Tíu mínútum síðar sótti Marinó svo vítaspyrnu þegar hann sótti boltann í teigshorninu en Bjarki Þór gáði ekki að sér og tók hann niður. Í þetta skiptið skoraði Andri Rúnar hinsvegar og heimamenn skyndilega búnir að snúa leiknum sér í vil.

Okkar lið reyndi hvað það gat til að jafna metin og komst nálægt því í uppbótartíma þegar Elfar Árni átti skalla rétt framhjá. 2-1 sigur heimamanna því staðreynd og svekkjandi að fá ekkert útúr leiknum.

Nivea KA-maður leiksins: Hallgrímur Mar Steingrímsson (Það var kraftur í Grímsa og hann gaf ekki tommu eftir. Gerði mark okkar liðs uppúr nánast engu. )


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is