Áki og Bjarni gera þriggja ára samning við KA

Fótbolti

Áki Sölvason og Bjarni Aðalsteinsson gerðu í dag þriggja ára samning við KA. Bjarni og Áki eru báðir fæddir árið 1999 og léku á fyrsta ári 2. flokks í sumar.

Áki er sóknarmaður sem hefur leikið tvo landsleiki fyrir 16 ára landslið Íslands og hefur verið valin í ýmis landsliðsúrtök að undanförnu. Hann lék með 2. flokki í sumar og Dalvík/Reyni í 3. deildinni. Hann lék 4 leiki með Dalvík/Reyni í sumar og skoraði í þeim þrjú mörk. Hann kom einnig við sögu með KA í Borgunarbikarnum gegn Tindastól.

Bjarni er miðjumaður og leikur oftast sem djúpur miðjumaður. Hann lék einnig með Dalvík/Reyni í sumar og kom við sögu í fjórum leikjum. Ásamt því að leika með Dalvík/Reyni þá lék hann með 2. flokki.

Báðir þessir strákar eru gríðarlega efnilegir og voru m.a. hluti af stórefnilegum 1999 árgangi KA sem datt út í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra í 3. flokki.

KA óskar drengjunum til hamingju með sinn fyrsta samning við KA og er ljóst að framtíðin er björt hjá félaginu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is