Meistaraskóli handboltans um páskana

Handbolti

Handknattleiksdeild KA verður með frábæran meistaraskóla fyrir öfluga stráka og stelpur um páskana. Krakkar í 4. til 7. flokks geta skráð sig í skólann sem fer fram dagana 25.-27. mars (mánudag til miðvikudags).

Leikmenn og þjálfarar meistaraflokks karla sjá um æfingarnar en á dagskrá eru tveggja klukkustunda æfingar ásamt léttri hressingu á milli æfinga og funda. Allir sem taka þátt eiga möguleika á að vinna treyju frá Bjarka Má Elíssyni, Elvari Erni Jónssyni og Degi Gautasyni!

6. og 7. flokkur æfa frá kl. 8:30 til 11:00 en 4. og 5. flokkur æfa frá 11:30 til 14:00.

Skráning er hafin í Sportabler, en aðgangur í skólann kostar 12.000 kr. Ekki missa af þessu frábæra tækifæri!

KA í Sportabler


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is