Tilnefningar til þjálfara ársins 2023

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Blak

Fimm öflugir þjálfarar eru tilnefndir til þjálfara ársins hjá KA fyrir árið 2023. Þetta verður í fjórða skiptið sem verðlaun fyrir þjálfara ársins verða veitt innan félagsins. Valið verður kunngjört á afmælisfögnuði KA þann 8. janúar næstkomandi í vöfflukaffi sem stendur milli kl. 16:00 og 18:00.

Anton Orri var í þjálfarateymi 4. flokks stúlkna, 3. flokks drengja og 5. flokks stúlkna á árinu en kom einnig að þjálfun 6. flokks stúlkna, 7. flokks drengja og 7. flokks stúlkna. Undir stjórn Antons Orra þá náði 4. fl kvenna eftirverðum árangri en flokkurinn fékk silfur á Gothia Cup, silfur í bikarkeppninni og varð Íslandsmeistari A-liða.

Eins og Anton er þekktur fyrir þá lagði hann mikla vinnu í flokkinn og var uppskeran eftir því. Anton Orri var einnig í þjálfarateymi 3. fl sem varð Íslandsmeistari í A- og B-liðum og bikarmeistari. Anton Orri er duglegur og metnaðarfullur þjálfari sem sinnir sínum iðkendum mjög vel.

Miguel Mateo Castrillo hefur náð ótrúlegum árangri sem þjálfari karla- og kvennaliðs KA í blaki. Með stelpunum vann hann alla þá titla sem hægt var að vinna tímabilið 2022-23 er stelpurnar urðu Íslands-, Bikar og Deildarmeistarar auk þess að hampa titlinum Meistari Meistaranna.

Með karlaliðinu vann hann Íslandsmeistaratitilinn auk þess að vinna Meistari meistaranna nú í
haust. Þar sem reynslumiklir leikmenn hafa leitað annað hefur Mateo enn og aftur sýnt styrk sinn sem þjálfari og fyllt vel í skörðin með yngri og efnilegum leikmenn sem heldur betur hafa stigið upp en það sem af er þessu tímabili situr kvennalið KA í efsta sæti úrvalsdeildarinnar.

Oscar Fernandez Celis gerði stelpurnar í aldursflokki U14 að Íslandsmeisturum sem og Bikarmeisturum auk þess sem að strákarnir í U16 hömpuðu einnig Bikarmeistaratitlinum. Einnig náðist góður árangur í öðrum aldursflokkum en strákarnir í U12 unnu meðal annars til silfurverðlauna.

Oscar gegnir lykilhlutverki í starfi blakdeildar og þjálfar einnig öldungalið í félaginu þar sem silfur vannst í 3. deild kvenna sem og gull í 5. deild kvenna. Oscar hefur því heldur betur verið öflugur í að láta starfið vaxa og dafna líkt og það hefur gert undanfarið.

Slobodan Milisic eða Milo eins og hann er gjarnan kallaður var í þjálfarateymi 4. flokks drengja, 3. flokks drengja og 2. flokki drengja á árinu. Milo er okkar reyndasti þjálfari en hann hefur þjálfað hjá félaginu síðan 1999. Milo er ákaflega fær þjálfari hvort sem um er að ræða að kenna tækniatriði eða setja upp krefjandi og skemmtilegar æfingar sem kveikja áhuga iðkenda.

Á tímabilinu 2022-2023 tóku strákarnir í 4. flokk mjög miklar bætingar en fyrir tímabilið voru þeir ágætir en þegar líða tók á tímabilið var ljóst að þeir voru eitt besta lið landsins. Það sönnuðu þeir með að komast í úrslitaleiki um Íslandsmeistaratitilinn og bikarmeistartitilinn sem töpuðust báðir í framlengingu. Strákarnir í 3. flokk gerðu einnig vel og enduðu sem Íslandsmeistarar í A og B og Bikarmeistarar.

Stefán Guðnason hefur þjálfað handbolta hjá KA í fjölmörg ár og gert það afar vel. Stefán hefur mikið einbeitt sér og sett sína krafta og hæfileika sem þjálfari í kvennaflokka félagsins, KA/Þór. Hann hefur undanfarin ár þjálfað 3. og 4. flokk kvenna með góðum árangri og má segja að Stefán eigi mikið í þeim fjölmörgu efnilegu stelpum sem hafa komið upp hjá KA/Þór undanfarin ár.

Undanfarið ár þjálfaði hann hinn sterka árgang KA/Þórs sem skipaði 4. flokk félagsins. Stelpurnar urðu Íslands- og Deildarmeistarar, ásamt því að ná í silfrið í Bikarkeppninni. Stefán hefur einnig verið ötull utan vallar og gegnir starfi formanns í stjórn KA/Þór þessa dagana en hans framlag til kvennahandbolta á Akureyri verður seint fullþakkað.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is