Fyrsti leikur Þór/KA eftir EM pásu

Fótbolti
Fyrsti leikur Þór/KA eftir EM pásu
Þór/KA liðið fylgdi Söndru Maríu eftir á EM

Kvennalið Þórs/KA leikur í dag fyrsta leik sinn í rúman mánuð þegar liðið fær Fylki í heimsókn á Þórsvöll klukkan 18:00. Gert var hlé á deildinni á meðan EM fór fram en fyrirliði Þórs/KA hún Sandra María Jessen lék á mótinu og þá fór Þór/KA liðið í æfingarferð til Hollands og fylgdist vel með landsliðinu á EM.

Stelpurnar eru á toppi Pepsi deildarinnar með 31 stig og eru enn taplausar þegar 7 leikir eru eftir á meðan Fylkir er í næstneðsta sæti með 4 stig. Þór/KA vann fyrri leik liðanna í Árbænum 1-4 með mörkum frá Margréti Árnadóttur, Andreu Mist Pálsdóttur, Huldu Björg Hannesdóttur og Huldu Ósk Jónsdóttur.

Þrátt fyrir mikinn mun á stöðu liðanna má búast við strembnum leik en Fylkisstúlkur hafa átt fína leiki í sumar og náð að standa í liðunum í toppbaráttunni. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á Þórsvöll í dag og styðja stelpurnar til sigurs, það er gríðarlega mikilvægt að halda stigasöfnuninni áfram til að landa þeim stóra, áfram Þór/KA!

 FÉLAGLUJTMÖRKNETSTIG
1 Þór/KA 11 10 1 0 25  -    5 20 31
2 Stjarnan 12 8 2 2 30  -  10 20 26
3 ÍBV 11 8 1 2 23  -    9 14 25
4 Breiðablik 11 8 0 3 27  -    6 21 24
5 Valur 11 6 1 4 27  -  13 14 19
6 FH 11 5 0 6 12  -  17 -5 15
7 Grindavík 12 4 1 7 10  -  30 -20 13
8 KR 11 2 0 9   7  -  27 -20 6
9 Fylkir 10 1 1 8   5  -  22 -17 4
10 Haukar 12 0 1 11   6  -  33 -27 1

Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is