Þór/KA sótti sigur gegn HK/Víking

Fótbolti
Þór/KA sótti sigur gegn HK/Víking
3 stig í hús í dag! (mynd: Þ.Tr)

Íslandsmeistarar Þórs/KA sóttu nýliða HK/Víkings heim í Víkina í dag í 11. umferð Pepsi deildar kvenna. Mörgum liðum hefur gengið erfiðlega með að brjóta baráttuglatt lið HK/Víkings á bak aftur og stelpurnar þurftu að sýna þolinmæði í dag til að sigla sigrinum heim.

HK/Víkingur 2 - 5 Þór/KA
0-1 Sandra Mayor ('4)
1-1 Hildur Antonsdóttir ('6)
1-2 Andrea Mist Pálsdóttir ('41)
1-3 Hulda Ósk Jónsdóttir ('47)
2-3 Hildur Antonsdóttir ('59)
2-4 Sandra María Jessen ('71)
2-5 Sandra Mayor ('89)

Okkar lið fékk draumabyrjun þegar Sandra Mayor fylgdi á eftir hörkuskoti frá Önnu Rakel Pétursdóttur sem hafði verið varið. Borgarstjórinn vel á varðbergi og útlit fyrir þægilegan leik. En nýliðarnir svöruðu strax fyrir sig þegar Hildur Antonsdóttir skallaði aukaspyrnu í netið, frábært mark hjá HK/Víking og markið setti aftur pressuna á okkar lið.

Það var ljóst að stelpurnar okkar ætluðu ekki að missa leikinn frá sér og þær tóku völdin strax í kjölfar jöfnunarmarksins. Þrátt fyrir mjög góða pressu þá lét markið bíða eftir sér en það kom loksins á 41. mínútu þegar Andrea Mist Pálsdóttir átti draumaskot fyrir utan sem endaði í skeytunum. Stórglæsilegt mark sem kom á frábærum tíma.

Staðan var 1-2 í hálfleiknum, þrátt fyrir töluverða yfirburði þá má alls ekki afskrifa heimastúlkur sem eru skeinuhættar. Það var því ansi góð tilfinning þegar Hulda Ósk Jónsdóttir tvöfaldaði forystuna með svakalegri neglu fyrir utan teig. Miðið í lagi hjá stelpunum og mörkin hjá Huldu og Andreu Mist eru eitthvað sem eiga heima á YouTube.

Þrátt fyrir erfiða stöðu þá seigluðust heimastúlkur áfram og þær uppskáru á 59. mínútu þegar Hildur Antonsdóttir gerði sitt annað mark eftir laglegan undirbúning hjá Karólínu Jack. Staðan því 2-3 og leikurinn enn í járnum og nóg eftir.

Þegar um 20 mínútur lifðu leiks kom áhugavert augnablik þegar HK/Víkingur heimtaði brot, ekkert var dæmt og Þór/KA keyrði að markinu. Sandra Mayor gerði vel í að koma boltanum inn fyrir á Söndru Maríu Jessen sem lagði boltann í netið. Mikill hasar var á vellinum í kjölfar marksins og fékk Andri Hjörvar Albertsson aðstoðarþjálfari okkar liðs rautt spjald nokkrum mínútum síðar.

Sandra Mayor rak svo endahnútinn á leikinn á 89. mínútu þegar Rut Matthíasdóttir fékk góðan tíma við teiginn og hún kom boltanum á Borgarstjórann sem skoraði af öryggi. Lokatölur því 2-5 eftir skrautlegan leik. Stelpurnar lyfta sér þar með á toppinn en Breiðablik á leik til góða og geta endurheimt toppsætið.

Flottur sigur og 3 stig í hús sem liðið hreinlega varð að fá í þessari svakalegu toppbaráttu sem er í deildinni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is