Fyrsta Evrópumót Drífu

Lyftingar

Áfram berast fréttir frá Lyftingadeild KA en Drífa Ríkharðsdóttir keppti á sínu fyrsta Evrópumóti í vikunni en Evrópumeistaramótið í klassískum kraftlyftingum fer fram dagana 12.–17. mars í Velika Gorija í Króatíu. Alls eru 214 keppendum á mótinu frá 29 löndum.

Drífa keppti í -57 kg flokki, langfjölmennasta þyngdarflokki kvenna á mótinu. Því miður settu meiðsli strik í reikninginn hjá henni og hún var því töluvert frá sínum besta árangri í hnébeygju og réttstöðu en hún kemur reynslunni ríkari frá Króatíu.

Drífa lyfti:

Hnébeygja: 115kg

Bekkpressa: 82,5kg

Réttstöðulyfta: 155kg

Samanlagt: 352,5

Þetta skilaði Drífu í 21. sæti en Sovannphaktra Pal frá Frakklandi vann flokkinn með 470 kg í samanlögðum árangri.

Við óskum Drífu innilega til hamingju með fyrsta Evrópumótið en hún er að undirbúa sig fyrir HM í kraftlyftingum í júní.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is